mánudagur, desember 01, 2003

Skilasíðan 

Hér er skilasíðan mín. Reyndar langar mig að laga hana svolítið, bæta inn myndasíðu og e.t.v. einhverju fleiru en ætla samt að skila henni núna, þar sem skiladagur er í dag. Einnig eru fleiri verkefni sem bíða svo ég má ekki gleyma mér í vefsíðunni, það er mjög auðvelt.

föstudagur, nóvember 28, 2003

Vefsíðan 

Hann er alltaf langur og strangur loka spretturinn. Vona samt að vefurinn verði til á mánudaginn. Spennandi helgi framundan, heimapróf í fyrramáli og síðan vefurinn og aftur vefurinn.

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Lokaspretturinn 

Nú er tími til kominn að fara að bretta upp ermarnar og leggja lokahönd á vefinn. Maður er næstum því eins og fugl í búri þessa dagana við verkefnavinnu o.þ.h. svo er líka freistandi að reyna að vera duglegur og komast fyrr í jólafrí.

sunnudagur, nóvember 23, 2003

Styttist 

Mikið er nú alltaf ánægjulegt þegar það fer að styttast í annan endann á önnunum. Það fer um mann eins konar frelsistilfinning að geta farið að snúa sér að og hugsa um eitthvað annað en námið. Svo er bara að vona að einhver mynd verði komin á vefina okkar og tæknilegir örðugleikar hrjái mann sem minnst.

mánudagur, nóvember 17, 2003

Hæ hó 

Ég er aðeins að lát heyra frá mér, en verð að viðurkenna að ég er ekki sú alduglegasta í blogginu, sérstaklega þegar maður hefur í mörg önnur horn að líta.
Ég vona að það séu ekki margir sem hafa rekist á heimasíðuna mína því hún hefur verið ein rúst. Bæti úr því fljótlega.

mánudagur, nóvember 03, 2003

Talblogg 

Ég var að prufa talbloggið hjá Salvör. Svona talglærur eða talblogg hefur verið notað í íslensku áfanga hjá okkur og var alveg frábært að mínu mati. Mér finnst að fyrirlestrar eigi að vera sendir til okkar í fjarnáminu með einhverskonar tækjum eins og þessu. Tæknin er til staðar það er bara að nýta hana.
Síðan ætlaði ég að skrá mig á GSM-bloggið en gekk ekki upp, mér var sagt að hringja í 1414 þar sem minn sími væri ekki skráður hjá Og Vodafone svo ég hætti.

föstudagur, október 31, 2003

Skilaverkefnin 

Hér koma verkefnin mín PowerPoint og Skólaverkefnið. Var ekki talað um að skólaverkefnið tæki ca. 5 klst. ég er ansi hrædd um að það megi margfalda það svolítið.

Í dvala 

Jæja, það er að verða ansi langt síðan ég hef bloggað, skamm, skamm og engar afsakanir.
Það helsta framundan hjá mér er að ég er að fara í KHÍ núna á laugardaginn í einhver spennandi verkefni með náttúrufræðikennurum.

þriðjudagur, október 21, 2003

Steinasafn 

Ég ætlaði eiginlega að setja inn myndir frá Steinasafninu á Akranesi, því ég fór þangað um daginn og tók nokkrar myndir sem ég ætlaði að deila með ykkur. Einhverjir tæknilegir örðugleikar eru að hrjá mig því það kemur enginn html kvóði. Reyni að grufla betur síðar.
Þetta er alveg frábært safn sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara, sérstaklega ekki kennarar. Það er verið að gera vef fyrir safnið svo ég vísa á Byggðasafnið í Görðum.

mánudagur, október 13, 2003

Spjall, spjall 

Nú er maður alveg húktur á því að lesa innlegg á vefspjallinu og gleymir alveg að blogga.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?